27.8.2007 | 10:01
ÁTVR opnar þá ábyggilega fljótlega í Hrútafirðinum !
Fyndið með þetta N1 mál.
Ég var á ferðinni í sumar og á hverju krummaskuðinu af öðru var Vínbúð inní verslun N1. Ath það má ekki selja vín í matvörubúðum en það er í lagi að fylla bílinn, kaup bland í poka og ná sér í eina rauðvín fyrir afganginn !!!!!!!!!
Þetta eru forréttindi landsbyggðarinnar
N1 kaupir Staðarskála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Guðrún Elsa Gunnarsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er sérverslun Vínbúðarinnar inní þessum húsum,
þú sagðir það bara sjálf :D
þetta er ekkert annað en að þú getur farið í kringluna eða smáralind og verslað þar í matinn, í þig og á og fengið þér þar líka eina rauðvínsflösku fyrir afganginn
Árni Sigurður Pétursson, 27.8.2007 kl. 11:43
Sammála ÁSP, sé svo sem ekki muninn á Smáralind og bensínsölunni í t.d. Vík í Mýrdal, þar er Vínbúð og engin segir neitt um það.
kjartan (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 12:05
Hafa menn velt fyrir sér opnunnartímum þessara verslanna sem umræðir, t.d. á Vík, Kirkjubæjarklaustri nú eða Höfn svo einhver dæmi séu nefnd ???
Örvar (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 12:36
Þú segir Guðrún Elsa að það forréttindi landsbyggðarinnar, eða krummaskuðum eins og þú kýst að kalla litlu byggðirnar umhverfis Ísland, séu vínbúðir í N1! Það er lítil vínbúð sem hefur stuttan þjónustutíma þar sem ég bý þ.e. á Seyðisfirði, ágætt mál sem fellur nokkuð vel að öðrum rekstri þar tel ég. Hið rétta er auðvitað að það eru ekki forsendur til þess að reka þessar litlu vínbúðir einar og sér býst ég við og því er þetta gert. En það sem mig langaði að benda þér á er að það eru allt önnur atriði sem eru forréttindi þess að búa á landsbyggðinni heldur en vínbúðir, s.s. kyrrð, öryggi, nálægð vinnáttúruna og margt, margt fleira þó auðvitað séu kostir og gallar hér eins og fyrir sunnan og vissulega höfum við ekki allt það sem höfuðborgin okkar hefur upp á að bjóða. En það er síðan spurning sem ósvarað er hvort ekki sé rétt að selja rauðvínið í verslunum hér eða á sama hátt og gert er útí stóru heimsborgunum eða nb þar sem Reykjavík væri lítil, jafnvel væri hægt að kalla hana krumma ef vilji væri fyrir því , en það gerum við ekki ...................
Ómar B (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 13:54
Ómar B ber sigur í býtum..
Vínbúðirnar í þorpum úti á landi borga sig ekki, og þessvegna er fólkið sem býr í höfuðborginni hans látið borga svo að hann og aðrir þorparar geti sopið vín í ró og næði meðan við sitjum föst í umferðarhnútum.
-Þetta var röfl vikunnar, í boði Vínbúðar Seyðisfjarðar.
Magnús Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 15:57
Ég held að þetta snúist nú ekki um sigurvegara, lúsera eða röfl Magnús Geir, þín skrif dæma sig auðvitað sjálf enda eflaust ætluð að vera fyndinn!
En að sjálfsögðu máttu hafa hvaða skoðun sem þú vilt á mér og landsbyggðinni en þú ættir nú samt að hafa tíma til þess að nota kollinn á þér t.d. "í umferðahnútunum í Reykavík" allra landsmanna til að sjá að þarna er einfaldlega verið að hagræða varðandi vínbúðirnar og með þessu móti tekst það þ.e. stuttur opnunartími og lítið vöruúrval svo einfalt er það nú! Ég tek hinsvegar undir með þér að mjög erfitt er oft á tíðum að komast leiðar sinnar á höfuðborgarsvæðinu og eins finnst mér áhyggjuefni það stríðsástand sem virðist ríkja í miðbænum og víðar sem ég vona að þið leysið sem fyrst svo við getum öll verið stolt af höfuðborg allra landsmanna.
Ómar B (IP-tala skráð) 27.8.2007 kl. 20:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.