Færsluflokkur: Bloggar
1.11.2007 | 10:57
Í alvöru !!!!!!!!!!!
Ja hérna hér. Þykjast menn vera að segja fréttir??? Hefur þetta farið fram hjá einhverjum ???????
Október er búinn að fera rennandi blautur og líka hrikalega vindasamur. Oft er nefnilega svo gott veður á haustin. Aðeins farið að kólna og svona stillur. En það hefur sko ekki verið núna. Búið að vera alveg hundleiðinlegt haust, hvað veðrir varðar.
Ef þetta hefur farið fram hjá einhverjum þá óska ég honum til hamingju að geta útilokað sig svona frá veðrinu
Úrkoma í október langt yfir meðallagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2007 | 09:50
(Veður) Guð Hvað hef ég gert þér ??????
Hvað er þetta eiginlega með þetta veður. Mar er ekki að meika þetta dag, eftir dag, viku eftir viku. Endalaust helv......... rok, og rigning. arrg. fneis gúlp
Verð að passa að láta þetta ekki fara með skapið því framundan er svo margt skemmtilegt. Á morgun er saumó og kemst ég því miður ekki á tónleikana "ungir gamlir" Læt stelpurnar hafa forgang þarf eitthvað svo að spjalla við þær og sauma svolltið með
Síðan er setning vökudaganna á föstudaginn og námskeið í á laugardaginn og svo endalaus menningardagskrá alla næstu viku jíha....... Tónleikar með Jóni Ólafs, Hönnu Þóru, Jazz ofl ofl. ofl............ nammi
Nú líður mér betur og heyri ekki vindgnauðið í glugganum hjá mér
Eigiði annars yndislegan dag !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2007 | 15:58
Skóli og ógiftar lesbíur á vökudögum
Ja það er nú aldeilis mikið í gangi hjá manni þessa dagana. Skólinn á milljón, endalaus verkefnaskil, próf og læti.
Þetta er víst partur af prógrammet, eins og þar stendur. Erfitt en alveg drullugaman. Hefði átt að skella mér miklu fyrr í þetta nám, en betra er seint en aldrei.
Hef mikið verið að spá í umræðunni um hjónaband samkynhneigðra og enn og aftur er kirkjan og öll umræða um hana full af fordómum, hræðslu og hræsni. Hvar eru gömlu og góðu gildin sem eru predikuð yfir okkur frá kirkjunni.
Fyrirgefning, umburðarlyndi, manngæska og að ég tali nú ekki um Það sem þú vilt að aðrir gjöri þér, það skalt þú og þeim gjöra.
Ég tel mig vera frjálslynda og finnst ákkúrat ekkert að því að hommar og lesbíur fá blessun drottins ef þau óska þess. Erum við ekki öll jöfn fyrir Guði, eða hvað. Ekkert athugavert við að fyrirgefa morðingum og bjóða þá aftur velkomna í samfélagið en ef fólk er samkynhneigt þá er það annarsflokks. Er umburðarlyndið alveg að fara með kirkjunnar menn ?????
En eins og ég sagði er ég annars bara nokkuð góð. Hlakka mikið til vökudaganna í næstu viku. Frábært dagskrá að vanda og því tilvalið að skella sér á Skagann og upplyfa góða menningu, stemmingu............ http://akranes.is/default.asp?sid_id=34110&tId=1
Þangað til næst hafið það sem allra best og gangið hægt um gleðinnar dyr...........
p.s.
Allt í lagi að kvitta fyrir komuna,þið sem ekki geriða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2007 | 13:34
(dreifbýlis)Vefmiðlar
ÆÆ
ég má til að senda ykkur dæmi um fádæma hallærislega frétt að mínu mati. Gaman að því stundum hvernig stjórnsýslan virkar.
Athugið annað að svona fréttir rata svo kannski í aðalfréttatíma útvarpsstöðvanna
http://skessuhorn.is/default.asp?Sid_Id=24845&tid=99&fre_Id=62782&meira=1&Tre_Rod=001|002|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.10.2007 | 09:49
Ljótar Auglýsingar
Ég er mikill aðdáandi auglýsinga, svona yfir höfuð. Finnst leiknar sjónvarpsauglýsingar oftast mjög skemmtilegar. Thule auglýsingarnar eu dæmi um frábærar auglýsingar að maður tali nú ekki um hann Lýð minn. GARGANDI. Með betri íslenskri dagskrárgerð, smá píla til RUV, þeir eru alltaf með svo skemmtilega dagskrárgerð
Það er eitt sem fer alveg hrikalega í mig þessa dagana og það eru blaðaauglýsingarnar frá Bónus. Þetta birtist hér í póstinum í hverri viku og í Sjónvarpinu líka. Alveg hrikalega ósmekklegt. Búið að "afklæða" svínalundir og kjúkling og svið, ojojojo. Sett á eitthvað brauðbretti!!!!!!!!!!!!
Sett svo á hvítan bakgrunn, Bónus bannerinn gulur og verðbannerinn rauður.
Common, var þetta tilraunaverkefni í listaháskólanum eða hvað. Nóatúns blaðaauglýsingarnar eru miklu betri. þar eru svinarifin og fylltu lundirnar hrikalega girnilega, svo maður tali nú ekki um grísabógin............ slurk slurk
Auglýsingagagnrýni dagsins var í boði Guðrúnar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2007 | 13:06
Djöf.............. viðbjóður
Þið verðið að fyrirgefa en ég hef ekki nægilega sterk orð til að lýsa viðbjóði mínum á svona fréttum. Kannski er ég ekki hlutlaus þar sem ég á sjálf dætur og meira að segja eina ÞRIGGJA ÁRA (gubb gubb)
Já og hvaða refsing er svo nægileg fyrir svona glæp????? Ég læt ekki fylgja með það sem mig langar að gera við hann, mér yrði örugglega stungið í steininn fyrir það
Aumingja barnið, það er búið að skaða það fyrir lífstíð.
Handtekinn fyrir að nauðga þriggja ára stúlku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2007 | 17:00
Bloggleti dauðans
Ja hérna hér. Manns er bara að deyja úr bloggleti. Enda kannski haft ýmsum öðrum hnöppum að hneppa (eða glösum að lyfta)
Það er alveg geðveikt að gera í vinnunni og skólanum og er ég að jafna mig eftir erfiða helgi á Akureyri. Hrikalega gaman en djö........ er maður þreyttur eftir svona.
Ég upplifi mig sem svona "andlegan öryrkja" ,fæ samt engar bætur
Margt skemmtilegt í fréttunum.
Heima fyrir:hmmm Komin með nýjan mann. Hann heitir Frímann Lýður, og Lýður bara vel
Restin af Íslandi, Stóra Rei málið. Hrikalega intressant. Mjög skemmtilegt mál á margan hátt. Leðinlegt fyrir Villa kall greyið. 'Eg votta Reykvíkingum samúð mína að hafa misst þennan meirihluta. En verði ykkur að góðu...............
Till next, bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 09:37
Viðreynslulínur !!!!!!!!!!!!!!!!
Var að spá í að vera öskureið og hella mér yfir handónýtt dómskerfi sem leyfir barnaperrum að stunda lögmannsstörf og ofbeldis og kynferðisafbrota mönnum að ganga lausum hala........ En ég ætla ekki að eyðileggja daginn fyrir mér. Og ákvað því að slá á létta strengi ogvera með svona smá grín. Við þurfum að hafa gaman af lífinu líka er það ekki???
Ég elska pikköplínur, fyrirgefiðið "Viðreynslulínur"
Rakst á nokkrar góðar á blogginu hennar Gurríar Har gurrihar.blog.is
Má til með að deila þessu með ykkur.
Ég vildi að þú værir leikfangahesturinn á Umferðarmiðstöðinni þá gæti ég verið á þér allan daginn fyrir klink.
- Kallaðu mig bara mjólk. Ég geri líkama þínum gott.
- Viltu í glas eða kannski bara peninginn?
- Ég er kannski ekki sá allra sætasti á svæðinu en ég er sá eini sem er að tala við þig.
- Eigum við að koma að leika hús? Þú mátt vera svalahurðin og ég skelli þér alla nóttina.
- Ég er nýfluttur í bæinn. Geturðu sagt mér í hvaða átt heimili þitt er?
- Ég elska hvert bein í líkama þínum, sérstaklega mitt.
Hann: Má bjóða þér upp í dans?
Hún: Mér finnst þetta leiðinlegt lag og langar heldur alls ekki að dansa við þig.
Hann: Þú hefur misskilið mig. Ég sagði að þig skorti allan elegans.
- Ef hægra lærið á þér væri aðfangadagur og það vinstra gamlársdagur mætti ég þá heimsækja þig á milli jóla og nýárs?
- Þú ert kannski ekki sú sætasta hérna en fegurðin er bara í slökkvara fjarlægð ...
- Hæ, ég er líksnyrtir. Hvernig ertu í því að þykjast dauð?
- Sú staðreynd að ég er að missa tennurnar þýðir bara að það verður meira pláss fyrri tunga í þér.
Þetta eru kannski svona "Turnofflínur "-
Eigið annars góðan dag.
p.s. Jose Mourinhio atvinnulaus. Vantar ekki einhver fótboltalið á klakanum þjálfara. Hann má búa hjá mér..........................
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2007 | 08:40
Svo mega þeir ekki auglýsa
Þessi verðmunur kemur mér ekki á óvart. Ég hef sjálf reynt þetta á eigin skinni. Okkur foreldrum er hent út í djúpu laugina og við eigum að velja tannréttingasérfræðing án þess að vita nákvæmlega hverjir eru í boði. Svo kemur í ljós í lok meðferðar að tannréttingin var helmingi dýrari en hún hefði orðið hjá öðrum sérfræðingi aðeins neðar í bænum........... eða eitthvað.
Tannlæknar mega í raun ekki benda okkur á einn sérstakan. Farið bara í Gulu síðurnar
Það vona ég innilega að nýr og ferskur heilbrigðisráðherra afnema það að heilbrigðisstéttir megi ekki auglýsa starfsemi sýna. Common, why not.
Þá væri samkeppnin sýnilegri og myndi þetta auðvelda okkur öllum að velja milli sérfræðinga. Við værum allavega meðvitaðri um hvað væri í boði.
Eigið þið annars góðan dag og munið að bursta tennurnar
Fjórfaldur verðmunur á tannréttingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2007 | 19:46
Er nema von að manni misbjóði.
Hvað er að dómskerfinu hér á landi. Í hvaða "raunveruleika " búa þessir dómarar
Hversu alvarlegt og viðurstyggilegt þarf brotið að vera til að refsirammi verði nýttur?
Ég veit ekki með ykkur en mér er gjörsamlega misboðið og fyrirgefiði en hvað er verið að setja út á það hverjir veljast í hæstarétt ? Það skiptir greinilega ekki nokkru máli.
Kannski það sé viðtekin venja að leyfa brotamanninum að njóta vafans. 3,5 ár fyrir svona brot er bara djók og pælið í því að hann þarf bara að sitja 2/3 af sér. Kemst þar að auki kannski inn á Vernd........... Þar hafa menn það aldeils huggulegt
Fékk ekki maður sem stal kjötlæri einhverja mánuði í dóm. hmhmhm Hver skyldi vera hættulegri umhverfi sínu ?????
Það ætti að taka upp kúrs í lögfræðinni sem heitir "COMMON SENS, EÐA VENJULEGT SIÐFERÐI".
Djö................ getur maður orðið reiður.
Bloggheimar loga vegna dóms yfir nauðgara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Guðrún Elsa Gunnarsdóttir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar